Thursday, August 2, 2012

Vindpokar


Vindpokar eða vindsokkar eru notaðir á flugvöllum til að gefa flugmönnum sjónræna vísbendingu um stefnu og styrk vinds í flugtaki og lendingu. Þessir pokar geta þó gagnast öðrum en flugmönnum en ökumenn við Þjóðveg 1 geta t.d. nýtt sér einn slíkan poka við suðaustanvert Ingólfsfjall. Á Íslandi eru allir pokar í notkun 15 hnútar (u.þ.b. 7,5 m/s) þar sem fullstrekktur poki táknar vindstyrk upp á 15 hnúta eða meira.  

Vindpoki með eina hvíta rönd. Mynd fengin hjá Myndasafni Flugmódelmanna (myndir.frettavefur.net)



Vindpokar geta verið í mörgum litum en hér á landi er heillitaður appelsínugulur poki eða röndóttur hvítur og appelsínugulur í notkun. Samkvæmt Aþjóðaflugmálastofnuninni (ICAO - Annex 14, 5.1.1.3), er mælst til að hafa 5 rendur þegar poki er röndóttur þar sem fyrsta og síðasta rönd skulu vera í dekkri litnum. Á slíkum pokum er auðvelt að meta vindstyrkinn en strekktur poki við fyrstu rönd eru 5 hnútar (u.þ.b. 2,5 m/s) og við aðra rönd eru það 10 hnútar (u.þ.b. 5 m/s). Hér á landi eru hins vegar eingöngu notaðir pokar með eina hvíta rönd og táknar hún þá 7 til 8 hnúta (3,5-4,0 m/s) vind.




Samkvæmt Alþjóðaflugmálastofnun eiga pokarnir að vera 3,6 m á lengd og 0,9 m í þvermál við breiðari endann. Pokarnir skulu hanga í 6 m hæð.