Vindpokar eða vindsokkar eru notaðir á flugvöllum til að gefa flugmönnum
sjónræna vísbendingu um stefnu og styrk vinds í flugtaki og lendingu. Þessir
pokar geta þó gagnast öðrum en flugmönnum en ökumenn við Þjóðveg 1 geta t.d. nýtt
sér einn slíkan poka við suðaustanvert Ingólfsfjall. Á Íslandi eru allir pokar
í notkun 15 hnútar (u.þ.b. 7,5 m/s) þar sem fullstrekktur poki táknar vindstyrk
upp á 15 hnúta eða meira.
Vindpoki með eina hvíta rönd. Mynd fengin hjá Myndasafni Flugmódelmanna (myndir.frettavefur.net)
|
Vindpokar geta verið í mörgum litum en hér á landi er heillitaður
appelsínugulur poki eða röndóttur hvítur og appelsínugulur í notkun. Samkvæmt Aþjóðaflugmálastofnuninni
(ICAO - Annex 14, 5.1.1.3), er mælst til að hafa 5 rendur þegar poki er
röndóttur þar sem fyrsta og síðasta rönd skulu vera í dekkri litnum. Á slíkum
pokum er auðvelt að meta vindstyrkinn en strekktur poki við fyrstu rönd eru 5
hnútar (u.þ.b. 2,5 m/s) og við aðra rönd eru það 10 hnútar (u.þ.b. 5 m/s). Hér
á landi eru hins vegar eingöngu notaðir pokar með eina hvíta rönd og táknar hún þá
7 til 8 hnúta (3,5-4,0 m/s) vind.
Samkvæmt Alþjóðaflugmálastofnun eiga pokarnir að vera 3,6 m á
lengd og 0,9 m í þvermál við breiðari endann. Pokarnir skulu hanga í 6 m hæð.
No comments:
Post a Comment