Þetta er stutt samantekt á öflun veðurupplýsinga fyrir sjónflug innanlands. Eftir að búið er að kynna sér veðrið og fá almenna hugmynd um spána ÞÁ er hringt í veðurfræðing ef einhver vafamál eru.
1. Fyrst er TAFor og METAR fyrir brottfarar- og komuflugvöll athuguð:
Ef TAFor fullnægir skilyrðum er haldið áfram.
2. Þá eru flugveðurskilyrði yfir landinu athuguð:
Hvernig er veðrið á flugleið? Á skýjahæð (BKN/OVC) að vera fyrir ofan ákveðna hæð? Hér sjáið þið einnig vindstyrkinn í 5.000´. Ef fljúga á lægra er dregið af styrknum og vindátt lækkuð lítillega.
Einnig má skoða vindaspá hér í mismunandi hæðum:
ATH! Ekki skoða Íslandskortið með sólinni og skýjunum, það er ekki áreiðanlegt!!
Veðurþáttaspár á síðu Veðurstofunnar eru mjög góðar, sérstaklega fyrir vindinn:
Veðurþáttaspárnar eru áreiðanlegustu spárnar fyrir yfirborðsvind því þær greina landslagið best. Athugið að úrkomuspáin er ekki jafn traustverð þar sem erfitt er að segja nákvæmlega hvar skúrir koma, en hún gefur þó almennt góða hugmynd um hvar úrkoman verður.
3. Hvernig er veðrið núna og síðustu klukkustundir:
*Veðurathuganir:
Á vesturlandi er t.d. veðurathugunarstöð á Skálafelli í 2.000´ sem ætti að gefa góða hugmynd um vindinn í hæð (t.d. fyrir flug á Stóra Kropp og Kaldármela).
Hægt er að skoða radar hér (sýnir síðustu klukkustundir):
http://www.vedur.is/vedur/flugvedur/vedursja/#teg=radartungl
og neðst hér:
http://brunnur.vedur.is/myndir/listi/
http://www.vedur.is/vedur/flugvedur/vedursja/#teg=radartungl
og neðst hér:
http://brunnur.vedur.is/myndir/listi/
*Skoða vefmyndavélar. Hvernig lítur veðrið út á leiðinni og á áfangastað:
Vegagerðin heldur úti miklum fjölda vefmyndavéla sem gott er að leita til:
Smellið á landshlutann sem óskað er eftir.
Sjá einnig hér lista yfir vefmyndavélar.
4. Ítarlegri veðurupplýsingar:
*Ég mæli eindregið með veðursíðunni Brunni:
Þar er mikið af upplýsingum að finna.
Á Brunnur-kort-spákort er að finna mikið af spákortum.
http://brunnur.vedur.is/kort/spakort/
Fyrir næstu 2 daga er best að skoða Hras3 en fyrir lengri tíma spá er ecm0125 (mjög gott fremsta kort í þriðju línu þar).
http://brunnur.vedur.is/kort/spakort/
Fyrir næstu 2 daga er best að skoða Hras3 en fyrir lengri tíma spá er ecm0125 (mjög gott fremsta kort í þriðju línu þar).
Einnig er hægt að nálgast nýjustu gervitunglagögn á Brunni:
Brunnur-myndir-listi
þar sem MODIS myndirnar eru fremstar í flokki.
Neðst á þessari síðu er að finna radar myndir en þar er líka hægt að nálgast vindinn í FL025 og FL050 á suðvesturhorninu sem getur verið gagnlegt.
*Hér má skoða hvernig vindurinn og hitastigið hafa verið síðustu 4 klst á nokkrum völlum og stöðum á landinu:
http://brunnur.vedur.is/pub/teitur/flugvellir/1477.html
*Hér má skoða hvernig vindurinn og hitastigið hafa verið síðustu 4 klst á nokkrum völlum og stöðum á landinu:
http://brunnur.vedur.is/pub/teitur/flugvellir/1477.html
*Belgingur er einnig með mjög góða veðursíðu:
www.belgingur.is
þar sem hitaritin segja mikið um líkur á skýjamyndun og í hvaða hæð.
þar sem hitaritin segja mikið um líkur á skýjamyndun og í hvaða hæð.
Að auki eru Landmælingar með góða kortasíðu fyrir þá sem vilja rifja upp landafræðina en þar er hægt að leita eftir staðarnöfnum:
http://atlas.lmi.is/kortasja/
http://atlas.lmi.is/kortasja/
Mikið er af öðrum góðum og athyglisverðum síðum. Þetta er einungis brot af þeim.
kv. Birta
kv. Birta
No comments:
Post a Comment